Nautgriparæktarverðlaun BSE fyrir liðið ár, 2021. Svertingsstaðir 2

666

Hákon B. Harðarson og Þorbjörg H. Konráðsdóttir tóku við búskap á Svertingsstöðum 2 árið 2015 af foreldrum Hákonar. Hann er 4 ættliður sem er með búskap á Svertingsstöðum, en Tryggvi Jónsson og Ágústína Gunnarsdóttir, langafi og amma Hákonar, kaupa Svertingsstaði 1921.

Á Svertingsstöðum hefur alla tíð verið rekin blandaður búskapur þó mjólkurframleiðslan sé nú aðalbúgrein búsins og hefur mikið verið lagt upp úr góðu skýrsluhaldi og skipulögðu ræktunarstarfi í nautgriparæktinni allt frá upphafi skýrsluhalds í nautgriparækt.  Nautgriparækt á Svertingsstöðum á því langa sögu.

Búið hefur verið virkt í ræktunarstarfinu með notkun sæðinga og með því að senda nautkálfa á nautastöð.  Í ræktunarstarfinu hefur áherslan verið lögð á að rækta afurðasamar og endingagóðar kýr sem henta til mjólkurframleiðslu við nútímaaðstæður

Nú er í notkun reynt naut frá Svertingsstöðum, Álmur 16007 en þetta nafn bar einnig fyrsta nautið sem fór á nautastöð frá búinu 40 árum áður en það var Álmur 76003.  Aðalsmerki þess nauts var einmitt góð ending og afurðasemi. Nú eru 3 nautkálfar í uppeldi á Nautastöð Bændasamtaka Íslands frá Svertingsstöðum, en alls hafa þau Hákon og Þorbjörg sent 11 naut á nautastöðina síðan þau tóku við 2015.

Svertingsstaðir hafa síðustu ár oft verið í hópi afurðahæstu búa landsins og var í hópi fyrstu búa landsins sem náðu meira en 6000 kg/árskú er það var afurðahæsta bú Eyjafjarðar ári 1997, þá með 16, 9 árskýr.

Búið hefur stækkað jafnt og þétt síðan þá.  Árið 2007 var nýtt 84 bása fjós með mjaltaþjón tekið í notkun á Svertingsstöðum.  Eins og áður sagði hefur búið lengi verið í hópi afurðahæstu búa landsins.  Fyrsta búskapar ár Hákonar og Þorbjargar var meðalnyt á búinu 6.405 kg á árskú. Í ágúst 2020 náðu kýrnar á Svertingsstöðum fyrst að rjúfa 8000 kg múrinn og í árslok það ár var búið níunda afurðahæsta bú landsins í hópi 14 búa sem voru með afurðir yfir 8000 kg/árskúkú.

Búið var árið 2021 fimmta afurðahæsta bú landsins með 61,7 árskú og 8.337 kg/árskú þar sem fituprósenta var 4,16 og próteinprósenta 3,5

Afurðaaukning frá því að Hákon og Þorbjörg tóku við búskap í ársbyrjun 2015 hefur er því rúmlega 1900 kg/árskú.

Ræktunarstig á búinu er hátt.  Nú í lok febrúar voru 63 kýr í mjólkurframleiðslu og í þeim hópi eru 14 nautsmæður.  Af 42 kvígum í uppeldi eru 13 flaggaðar sem efnilegar kvígur.  Meðal kynbótagildi hjarðarinnar í heild er 104,6 eða rúmlega 4 kynbótastigum yfir meðaltali.

Það er vel við hæfi að þegar liðin er öld frá því Tryggvi og Ágústína keyptu Svertingsstaði hljóti afkomendur þeirra nautgriparæktarverðlaun BSE fyrir árið 2021.