Þröstur og Sara á Moldhaugum hlutu nautgriparæktarverðlaun BSE

1909

Þröstur Þorsteinsson er fæddur á Moldhaugum og ólst þar upp en foreldrar  hans keyptu jörðina 1947 og hóf hann hóf búskap með þeim 1987. Frá árinu 1999 hefur Þröstur búið þar með konu sinni Söru Saard Wijannarong ásamt tveimur sonum þeirra hjóna.
Lengi hefur verið vel búið á Moldhaugum en nýtt fjós með mjaltaþjóni var tekið í notkun árið 2013 og í kjölfar þess hækkuðu afurðir búsins um nálægt 2000 kg af mjólk á hverja kú á tveimur árum. Síðustu fjögur ár hafa Moldhaugar verið í hópi 15 afurðahæstu kúabúa landsins. Árið 2016 skipuðu þau annað sæti listans með 8.274 kg af mjólk eftir 61 árskú. Á síðasta ári var bú þeirra hjóna í 7. sæti með 8.149 kg eftir tæplega 64 kýr. Á þessum árum hefur búið verið í fyrsta til fjórða sæti afurðahæstu búa á félagssvæði BSE.
Einnig eru þau hjón með talsverða nautakjötsframleiðslu og á síðasta ári voru lögð inn nálægt 5 tonnum af 20 nautum.
Þröstur og fjölskyldan á Moldhaugum fá nautgriparæktarverðlaun BSE fyrir árið 2018 fyrir afar góðan árangur í greininni.

Fyrri greinBændur á Svertingsstöðum 2 fengu sauðfjárræktarverðlaun BSE fyrir liðið ár.
Næsta greinForsendubrestur tollasamnings.