Hvatningarverðlaun BSE fyrir árið 2020

1235
Lindigarðar ehf. Ósi Hörgársveit
Að Lindigörðum ehf standa Nanna Stefánsdóttir, dóttir hennar og tengdasonur, Sunna Hrafnsdóttir og Andri Sigurjónsson
Nanna er skrúðgarðyrkjumeistari frá Garðyrkjuskólanum og hefur starfað við garðyrkju síðan 1984. Árið 2007 stofnaði hún fyrirtækið Lindigarða ehf sem í upphafi sá um lóðaumhirðu og fl. á Akureyri.
Sunna er með BA próf á þjóðfélagsfræði og hefur einnig lokið bókhalds- og skrifstofunámi og útskrifaðist sem garðyrkjufræðingur frá Lbhí af lífrænni braut skólans árið 2018. Hún keypti helminginn í Lindigörðum ehf árið 2014, ásamt sambýlismanni sínum Andra Sigurjónssyni sem er húsasmiður að mennt og vinnur sem verktaki við smíðar. Það er óhætt að segja að menntun þeirra mæðgna í garðyrkju og Andra sem smiður hafi nýst einkar vel við uppbyggingu á búskapnum á Ósi.
Eftir að hafa leitað nokkuð að jörð til að stunda lífræna ræktun keyptu þau Ós í Hörgársveit haustið 2016. Á jörðinni hafði ekki verið stundaður búskapur til fjölda ára en tún verið nytjuð. Þar eru kjöraðstæður til ræktunar, jörðin liggur vel við sól. En það var ekki nóg því verkefnin voru mikil og mörg sem þurfti til að byggja upp framleiðsluna og koma í það form sem stefnt var að.
Byrjuðu eigendur strax að undirbúa jörðina og húsakost fyrir lífræna grænmetisrækt. Byrjað var að vinna upp frjósemi í jarðveginum, einnig var byggt gróðurhús. Stór braggi var á jörðinni og er búið að byggja inni í honum vinnslu þar sem aðstaða er til þvottar og pökkunar á grænmeti.
Fyrirtækið lauk aðlögun hjá Vottunarstofunni Tún og fékk vottun 2019 í lífrænni framleiðslu.
Ástæða þess að ábúendur á Ósi völdu lífræna ræktun var sú sannfæring að það væri best fyrir bæði jörðina og þá sem neyta vörunnar og því kom aldrei neitt annað til greina að fá lífræna vottun.
Margir sem hér eru inni geta vottað það að gulræturnar frá Ósi, en þær hafa verið uppistaðan í framleiðslunni, eru með eindæmum ferskar safaríkar og góðar.
Fyrir þá áræðni og elju sem eigendur Lindigarða hafa sýnt við að byggja upp ræktunina á Ósi fá þau Hvatningarverðlaun BSE fyrir árið 2020.
Fyrri greinNautgriparæktarverðlaun BSE fyrir árið 2019
Næsta greinÍsáning í tún eftir kal með sérhæfðum ísáningarvélum.