Árið 1963 hófu Stefán Þórðarson og Þorgerður Jónsdóttir búskap í Teigi.
Stefán var um langt árabil starfsmaður Búnaðarsambands Eyjafjarðar og titlaður vélaráðunautur og umsjónarmaður með skurðgröfu sem var eitt mesta framfaratæki landbúnaðar þess tíma. Stefán fékk Hvatningarverðlaunin fyrir tæpum tveimur áratugum vegna heykögglaverksmiðjunnar sem hann smíðaði að hluta og rak um langt árabil. Svínarækt hófst í Teigi 1971 sem stækkaði og þróaðist áfram.
Ingvi sonur þeirra tók við búi í Teigi aldamótaárið ásamt konu sinni Selmu Dröfn Brynjarsdóttur. Þau hafa síðan búið þar og eiga fjögur börn. Eldri sonurinn Tristan hefur einnig valið að búa og starfa þar með sambýliskonu sinni Lýdíu Rut Unnsteinsdóttur, þau eiga einn son.
Búskapurinn tók breytingum og um árabil voru keyptir eldisgrísir sem voru uppistaða búsins og það má geta þess að í Byggðum Ey. 2010 segir að á bænum séu 10 kindur, 1652 eldisgrísir og skógrækt.
Stóra stökkið í svínaræktinni var síðan þegar keypt var spilda ofan vegar úr landi Torfna til að byggja svínahús frá grunni, sem hafði lengi verið draumur Ingva. Ljóst var að slík framkvæmd mundi skipta miklu fyrir fóðursölu og veltu í slátrun og vinnslu á kjöti á svæðinu. Mikilvægi þess endurspeglast í því að Bústólpi og Kjarnafæði Norðlenska eiga hlut í uppbyggingunni. Það er oft vanmetið t.d. hversu jákvæð áhrif svínaslátrun hefur á sláturkostnað nautgripa.
En þar var stofnað lögbýli sem fékk nafnið Sölvastaðir, í höfuð á geltinum Sölva sem hafði fengið skipspláss með Helga magra í Eyjafjörð. Þar risu byggingar sem eru 3200 m², innréttaðar fyrir 400 gyltur og fráfærustíur og í öðru húsi er fóðurblöndun og aðstaða fyrir starfsfólk. Fyrstu gylturnar komu í húsið snemma sumars 2024.
Núna er að fara af stað uppsetning á starfsmannahúsi og það verður gaman að fylgast með áframhaldandi uppbyggingu.
Eitt af því sem er hvað athyglisverðast og vert að lofa við þessa uppbyggingu er sú mikla áhersla sem lögð er á aðbúnað dýra, sem er til algjörrar fyrirmyndar þar sem rými og aðstaða fyrir dýrin er umtalsvert meiri en reglur kveða á um.
Það vildi svo heppilega til að um það leiti sem uppbyggingin hófst lauk Tristan Darri búfræðiprófi og hóf störf við hlið föður síns sem hefur skipt sköpum vð uppbyggingu og rekstur á Sölvastöðum.
Umgengni og ásýnd á Sölvastöðum er til fyirmyndar, eins og hefur alla tíð verið í Teigi.
Hvatningarverðlaun BSE fyrir 2025 fara til þeirra feðga í Teigi, Ingva og Tristans vegna áræðni við glæsilega uppbyggingu á svínabúinu á Sölvastöðum.
