Aðalfundur okkar var haldinn í gær 31.3. í Sveitasalnum Ytra-Gili.
Gestir fundarins voru Bára Heimisdóttir gæðastjóri Kjarnaf. Norðlenska og Fannberg Jensen sem er yfir slátrun KN. Einnig Alexandra Rut Jónsdóttir verðandi framkvæmdastjóri BSE og Trausti Hjálmarsson formaður BÍ sem tengdist í gegnum fjarfundarbúnað.
Ný inn í stjórn komu Svanhildur Ósk Ketilsdóttir og Baldur H. Benjamínsson. Aðalsteinn H. Hreinsson var kosinn áfram til setu en þar eru einnig Agnar Þór Magnússon og Birgir H. Arason sem var endurkjörinn sem formaður.
Á aðalfundinum voru fundarstjórar Aðalsteinn Hallgrímsson og Gunnhildur Gylfadóttir. Helga Hallgrímsdóttir ritaði fundargerð.
Á síðasta ári var velta BSE 282m og hjá Bókvís ehf 50m. Hagnaður fyrir skatta 9,7m. og rúm milljón hjá Bókvís. Veltufé frá rekstri 15,3m. og eignir alls rúmar 208 milljónir.
Kúasæðingar á Norðurlandi eru lang stærsta deild í veltunni eða um 200m.
