|
Námskeið um viðhald og verðmæti fasteigna |
|
fimmtudagur, 02 september 2010 |
|
Nýsköpunarmiðstöð Íslands býður húseigendum og iðnaðarmönnum á námskeið um viðhald og verðmæti fasteigna sem haldið verður á nokkrum stöðum um landið í vetur. Viðhald og verðmæti er samstarfsverkefni Nýsköpunarmiðstöðvar og Íbúðalánasjóðs við sérfræðinga frá verkfræðistofum, Orkusetrinu, Rafiðnaðarskólanum, Húsi og heilsu, Iðunni - fræðslusetri og heimamenn í hverjum landshluta fyrir sig.
Á námskeiðinu er fjallað um mikilvæga viðhaldsþætti svo sem raflagnir, leka, loftgæði, húsasótt, hitastýringu, orkunotkun og mat á viðhaldsþörf. Þátttakendur geta valið um og flakkað á milli fjögurra málstofa sem allar tengjast viðhaldi og vörslu þeirra verðmæta sem felast í húseignum. Þátttökugjald er ekkert og allir velkomnir.
Fyrsta námskeiðið verður haldið í Menningarhúsinu Hofi á Akureyri miðvikudaginn 8. september frá kl. 14:00 - 18:00 .
Í lok námskeiðs kl. 16:45 verður slegið upp tengslatorgi þar sem þátttakendum gefst tækifæri til að fá svör og ráðgjöf hjá sérfræðingum. Á torginu í Hofi munu fjölmargir iðnmeistarar, verkfræðistofur, bankar og þjónustuaðilar í byggingariðnaði veita upplýsingar og fræðslu um allt sem lýtur að viðhaldi, endurbótum á húsnæði og að auknum lífsgæðum á heimilum og vinnustað.
Nánari upplýsingar, m.a. um dagskrá og skráningu má finna á vefslóðinni: http://nmi.is/impra/namskeid/vidhald-og-verdmaeti/
|
|
|
Styrkir til þróunarverkefna og jarðabóta 2010. |
|
fimmtudagur, 19 ágúst 2010 |
|
Nú er rétti tíminn til að sækja um úttektir vegna jarðabóta, þ.e. vegna endurræktunar túna, grænfóðurræktunar, kornræktar, kölkunar, framræslu og endurræktunar vegna aðlögunar að lífrænum búskap.
Á heimasíðu Bændasamtakanna, www.bondi.is má nálgast eyðublöð og / eða leið að vefumsókn, sjá nánar á http://www.bondi.is/pages/912
|
|
|
fimmtudagur, 19 ágúst 2010 |
Stjórn ungra bænda á norðurlandi vill minna á Sveitasælu í Skagafirði
laugardaginn 21 ágúst n.k. Þar verður meðal annars keppnin ungi bóndi ársins
og hvetjum við alla til að leggja leið sína í Skagafjörð og njóta gleðinnar og
hvetja norðlenska unga bændur í keppninni. Keppnin hefst kl 10:00 á
laugardagsmorguninn.
Gerið ykkur glaðan dag, fjölmennið á Sveitasælu og hvetjum okkar fólk í
keppninni.
Stjórn ungra bænda á norðurlandi.
|
|
|
|
<< Byrja < Fyrri 1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 Næsta > Endir >>
|
| Úrslit 1 - 8 af 282 |